Það er ekki ein báran stök!!! Frá því að við fluttum til Danaveldis hefur Gústi klesst nýja fína bílinn sem er á ógeðslegum lánum og í dag braut hann loftnetið svo að maður heyrir yndislegt suð í útvarpinu. Myndavélinni var stolið á íslendingaballinu og við fengum lánaða gamla myndavél sem tekur ekki myndir nema henni sínist svo. Talvan okkar er gjörsamlega að syngja sitt síðasta... fyrir utan að vera brotinn skjárinn ,þarf hún alltaf að vera að hlaðast annars drepst hún og maður kemst ekki inn á neinar síður OOOHHHHH...... Ætlaði að sauma mér fallega flík fyrir djammið í kveld en nei... helv fóturinn (á vélinni) er biluð svo ef maður ætlar að sauma fer vélin á ofurhraða og maður þarf að stoppa að sauma með því að slökkva og kveikja á vélinni AAARRGGGG Hillusamstæðan okkar brotnaði aðeins í flutningunum og ætlaði ég ekkert að kvarta yfir því við tryggingafélagið en þar sem allt annað er að líka ákvað ég að tékka en nei, er orðin of sein:/ Debetkortin okkar virka ekki í nema 2 búðum, maður þarf að fá sér dan kort til að geta verslað almennilega en til þess þarf maður að hafa vinnu. Og svo talandi um djammið í kvöld...... 10-15 íslenskar kellingar áttu að skella sér í djammfötin og partýa saman en því var frestað fyrir um 5 tímum sökum veikinda!!! Við erum að tala um það að ég saumaði helvítis bolinn með helvítis biluðu saumavélinni í gærkveldi og var að til hálf eitt til þess eins að geta verið í einhverju nýju í kveld og svo er partýinu frestað!! Gústi hoppaði auðvitað hæð sína yfir því að geta kúrt í kveld en ég var ekki eins hress hahahaha ooohhhh langaði svo að gera eitthvað annað en glápa á tv:/
En jæja jæja, á morgun er henni Stefaní minni boðið í mat og ætlum við kellurnar svo að skella okkur á kaffihús með hous músik sem Steffí veit um:) (hún var að skilja við kallinn svo maður verður að reyna að lífga hana við;) Það verður þó vonandi gaman!! Hef þessa helgi og næstu og svo er mínsan bara farin að vinna ef Örninn verður ekki lasinn. Gaurinn er búinn að vera veikur í 3 vikur með smá pásum sem er ekki beint upplífgandi, fyrir utan það að vera heima atvinnulaus þá er í raun verra að komast alls ekkert út:/ Vonandi bara að hann sé að taka þetta allt út í einu.
Og já svo er ég að fara að vinna nátturulega og á að byrja 8 desember og nú streima inn bréfin um jólaböll og jólagaman frá skólum og dagmömmum og dansinum og skautunum sem allt á að vera á vinnutímanum mínum AAARRGGGGGGGG
Getur maður verið óheppnari??
Jæja í öllu þessu ákvað mínsan að fjárfesta í nýrri tölvu svo ég geti hafið samskipti við ykkur á Facinu;) Kostar ekki nema 149kr á mánuði í 60 mánuði hahahaha Sem sagt engin kreppa hjá ungfrú Christensen (á líka eftir að byrja að borga 47 tommu sjónvarpið og vona ég innilega að mamma lesi ekki þetta blogg hérna;)
Hvurslags og annað eins.... Ætlaði að fara í efnabúð og kaupa efni í eitthvað meistaraverkið en nei ... það var lokað! Danir eru greinilega ekki eins kaupóðir og íslendingar:/ Lokað alla sunnudaga nema þann fyrsta í mánuði og ef manni vill leiga sér spólu kl 10 á kvöldin þá er lokað, panta sér pizzu, verður maður að gjöra svo vel að gera það fyrir hálf 10.... Dísus;) Já íslendingar eru orðnir of góðu vanir held ég barasta!!! Annars erum við loksins búin að borga leigulistanum fyrir að komast á bið hjá þeim að íbúð á Stenbjergsvej.... götu íslendinganna!! Þar búa núna um 10 íslenskar fjölskyldur og er aðalsportið að fara í kaffi til hverrar annarrar!! :) Get ekki beðið;) Gerum þetta nú aðallega til að fá íbúð á einni hæð og svo að Önju leiðist ekki jafn mikið. Annars er gellan komin með vinnu!!! JEJJ JEJJ Fékk vinnu á coffure stofu niðri í bæ og byrja í des, verð nú reyndar elst á stofunni og á svona eiginlega að sjá um hana þar sem að eigandinn á aðra stofu og hárkollugerð þar sem hún er alltaf;) Þegar svo búið er að umreikna launin í íslenskar krónur mun það samsvara sem rúmlega 3000kr- 3500kr:) Yndislegt!!! Annars get ég ekki beðið eftir að fara að vinna..... þegar maður hangir svona heima fitnar maður og fitnar og nennir ekki að gera rassgat nema hanga og glápa á tv eða sofa! Ekki nógu gott sko. Kvöldið í kvöld mun svo fara í það að elda mat fyrir Gullu og co og passa svo stelpurnar meðan foreldrarnir fara á djammið!! Það verður örugglega stuð
Drattaðist loksins á fætur, setti grímuna á og fór að sækja um vinnur! Náði að fara á 5 stofur og hringja í eina og alls staðar var nýbúið að ráða eða ekki vantaði fólk:/ Hvurslags???? (ætli ég hafi sett grímuna öfuga á mig) ?? Það hlýtur að vera því svo fékk ég símtal frá stofunni sem ég hringdi í og vill hún fá að hitta mig og ræða möguleikann á að ég starfi hjá henni í 25 tíma á viku: ) Heilsdags vinna í Danmerku er sum sé 37 tímar svo þetta er nú bara ágætt! Get þá líka haldið áfram að taka íslendingana heim og held mér við í faginu í leiðinni;) Allavega krossum bara puttana... eitt samt, hún hafði talað við aðra en það var heilt ár síðan hún hafði unnið á stofu og vildi því ekki hana hahahha ég hef ekki unnið á stofu í heilt ár og leið eins og mest undirförulstu manneskju í heiminum. Það er samt ekki eins og hún fari að hringja heim og tékka á þessu;) var nú líka í skólanum til maí svo ég er ekki algert monster;) En já... við parið mættum á íslendingaskemmtun síðasta laugardag og verð ég að segja það að íslendingarnir á svæðinu voru ekki landi sínu til sóma né framdráttar... Allstaðar var fólkið vel í glasi og minnti þetta mest á ekta íslenskt lopapeysuball með bjór í vasa og fleiginn í brókinni;) Svo voru þýskir leðurhommar á barnum (eða þeir litu allavega þannig út úr mínum glasaaugum;) En já það sem toppaði allt var að þegar allir voru í góðum gír á dansgólfinu við geislaspilarann, kemur einn sveitahomminn með gítarinn sinn og biður alla um að setjast í hring og fer að spila gömul þjóðlög og syngja!!!!!! 'eg hélt að ég yrði ekki eldri!!!! Nú veit ég hvað drepur mestu partýstemningu í heimi og mun ég ALDREI aftur draga upp gítarinn minn í mínum alræmdu partýum!!!!!!! SORRY þið sem hafið þurft að þola mig í fortíðinni!! Já og það versta við þetta allt saman er að myndavélinni okkar var stolið!!!!!!!!!!!!!!!! Helvítis ljóta pakk!!! Og við sem vildum eiga myndir af þessu ljóta pakki hahahaha oohhhh jæja íslendingar eru sem sagt ekkert skárri erlendis en pólverjar og litháar fjarri sínum heimahögum!!! En elskurnar ég kem heim annaðhvort helgina 11-12 jan eða 18-19 jan, ekki alveg búin að ákveða mig!! Er líka að melta það að biðja mömmu að gefa mér far til Akureyrar svo ég komist nú í mína heimahaga aðeins:) Sjáum til sjáum til!!! Allavega sakna ykkar alveg ógeðslega mikið!!!!!!!
Lofaði fólkinu "heima" að fylgjast með mér hérna sunnar við Ísland og hafði ég hugsað mér að halda því loforði. Get ekki beint sagt að ég nenni að blogga og hef lúmskan grun um að það sé soldið dottið út ef maður er ekki ráðherra eða merkismenni (sem ég er víst ekki orðin enn) en hér kem ég ;) Og dísús kræst hvað það var mikið stress að flytja marr.... ekki nóg með það að maður þurfi að panta ferju fyrir bílinn og kallinn, flug fyrir mig og börnin, finna skólann og redda öllu helvítinu í kringum það (aðalega peningum) borga tryggingar af bílnum og búslóðinni, klára skuldirnar heima (sem tókst ekki) sækja um LÍN og redda göggnum, fá leigendur að íbúðinni, tæma hana, ferja dótið til Samskip, láta alla hafa dótið sem maður hefur fengið lánað hjá hinum og þessum, finna helv íbúð sem tók OF langan tíma og redda peningum og leigusamning fyrir það, finna skóla fyrir skvísuna, hringja hingað og þangað og tékka á öllu, fá gistingu heima áður en út var farið, græna kortið, sjúkratryggingakortin, vegabréf, flugmiðar, og ef þið viljið að ég telji fleira upp þá endilega segið bara til;) Og þá er komið að fluginu..... Ég hélt að þetta yrði alveg heví næs flug (fyrir utan að vera ein með 2 börn) en NEI... Þar sem geitið okkar var nr 1 og því við hliðina á innkomuganginum sem ferjar fólk niður þá ákvað Anja mín að tékka á þessum flottu rennihurðum og smeigði sér inn, ég með Örninn horfði bara á hana þar til ég fattaði hvert hún væri komin. Strunsaði á eftir henni og skildi Örn eftir í Kerrunni með allar töskurnar okkar og reyndi að koma Önju út aftur. Við fastar, maður kemst sem sagt bara aðra leiðina í þessum gler helv gangi... einhver gaur kom og reyndi að hjálpa okkur að komast út en festist þá líka!!! Dísus... securitas reyndi að hjálpa en þar sem þetta er bara fyrir fólk sem er að koma til landsins opnast hurðirnar bara í eina átt og ekki möguleiki að komast út aftur!!! Við sem sagt hentumst niður ganginn þar sem búðin er og töskurnar koma,í gegnum tollinn í gegnum bið salinn, innritunina og öryggisgæsluna aftur og upp hlaupandi:/ ég var ekki sátt við dottur mína þarna;) Jæja þegar ég loksins kemst í röðina aftur er Örn sofnaður (típískt... hann átti sko ekki að sofna fyrr en í fluginu) þannig að ég var nú með 3 töskur og haldandi á 13 kg hlunki.... kona búin að taka sætin okkar og ég hélt ég yrði ekki eldri, þurftum að sitja hjá flugfreijunum þar til flugvélin var að fara í loftið, þá fékk ég sætin aftur og ætlaði "góða" flugfreyjan að redda mér auka sæti fyrir Örn!! Sé hvar hún reddar PARI með 1 barn auka sæti en kemur svo til mín að vélin sé því miður orðin alveg fullsetin og ég geti því ekki fengið auka neitt.... ÆÐI Ég ein með 2 börn og Örn í fanginu alla leiðina sem by the way vaknaði um leið og flugvélin var komin hálfa leið í loftið og sofnaði sko ekki aftur Svo var ég alveg búin að stóla á að Anja gæti horft á myndir í fluginu en nei videóið var bilað og eg varla með neitt dót.... hún var samt alveg ótrúlega þæg og yndisleg allt flugið en ég var brjáluð.... flugfreyjan klessti matarvagninum á löppina á mér, ég fékk ekkert að borða þar sem það var ekkert pláss hjá mér og svo fann e´g ekki kerruna hans Arnar og var í 1 og hálfan klt að fá allann farangurinn Jæja nóg um það.... núna erum við að hafa það náðugt í Aalborg "bæ draumanna" DJÓK;) Jú hann er voða klósý... búa um 300.000þús manns hérna og hann er bara rosa passlegur, tívólí , dýragarður, og fullt af öðru:) Búin að fara einu sinni á djammið hérna með Míru minni og það var svaka fínt!! Okkur var sagt að fara á Danse barinn af leigubílstjóranum en er við komum þangað var þar bara fólk yfir fertugt með yfirvaraskegg hahahahaha Kanski erum við líka komnar með yfirvaraskegg (fylgir víst aldrinum;) Við enduðum annars staðar:) Já þetta er bara ok enn sem komið er... helv krónan er hins vegar ekki að hjálpa neitt og ég fæ ekki dagmömmu fyrr en í Desember svo ég hangi heima með Erni allann daginn, yndislegt hahaha ekki alveg ég og alveg komin með nóg af því:) Æi vitiði mér svo drulluleiðist að ég nenni ekki að segja ykkur meir núna, verð að hafa eitthvað annað að gera við þessa nokkra þúsund klukkutíma sem ég hef til að skrifa áður en vinnan (sem ég er ekki komin með) kallar....
PS þið sem ekki hafið gefið kallinum mínum afmælisgjöf né erni sem á afmæli í lok Okt (minna ykkur á) þá er heimilisfangið TOVE DITLEVSENSVEJ 296 . 2 9000Aalborg
*Fórum norður í skírn hjá litla Danna bró og fékk hann nafnið Reynir Kató:) *Nína vinkona útskrifuð úr þroskaþjálfun og fórum í fína veislu:) *Ruth vinkona og Míra vinkona búnar að eignast litlar prinsessur:) *Gugga vinkona á von á dóttur í júlí:) *Við eigum von á litlum prins í október:) V'UH'U *Anja Steinunn ofur prinsessa orðin 5 ára:) Ó MÆ:) Dúlíi dúll:) *Erum að skoða fasteignir þessa dagana:)
Það sem á eftir að gerast í sumar...
*Ættarmót í Skagafyrði hjá Gústa ætt:) *Brúðkaup hjá Kidda og Berglindi og mun ég sjá um greiðslurnar:) Ó MÆ *'utilega í Skaftafell:) *Fara norður og passa afa í ágúst:) *Vinna og tjilla:)
Þessa stundina er Anjan mín hjá ömmu og afa á Akureyri og Gústi uppí sumarbústað að leggja gólfhita svo ég er ein hérna í kotinu að gera... nánst ekkert!!! Stuð Búin að vera með smá meðgöngukvilla sem tengjast maga og baki og fékk að fara heim í dag úr vinnu...... líður eins og einhver hafi barið mig nokkrum sinnum rösklega í bakið hahaha ekki gott;) En það er gott að liggja með fætur uppí sófa og hafa það kósy!! Ætla að vona að þetta verði nú ekki verra en það er núna!! :) Skrítið að þegar ég var ólétt af Önju og komin þetta langt fann ég varla fyrir því að ég væri ólétt og það sást heldur ekki.. enda er hún svo nett og yndisleg:) !! Ætli það þýði að ég muni eignast tröllabarn;) haha djók
Blessaðan.... Hef hreinlega ekki nennt að blogga síðustu daga og vikur... er eiginlega bara komin með nett ógeð á þessu en sjáum nú til! Ég náði öllum prófunum mínum, mikil gleði tíðindi:) Hélt ég líka uppá það í henni London en gerðist ekki svo fræg að fara á Oxford í þetta skiptið:/ Bæti það upp síðar;) Neibb við fórum í mollið og göngugötuna í Reading alla dagana hahahahahah en get nú alveg sagt ykkur það að þar eru nákvæmlega sömu búðirnar og í London, bara ódýrari og þegar kom helgi var maður næstum troðinn niður þarna, svo mikið var af fólki:/ DÍSUS En já þetta var fín ferð, Fanný (tengdó) hafði lofað okkur geggjaðri sól og hitasvækju en við fengum íslenska veðrið beint í æð sinnum 100%!!! er að spá í að byðja hana um að gefa okkur öllum ljósakort svona til að bæta þetta upp;) Dj'OK
Sendi Önju norður síðasta föstudag, Það var geggjað næs, fórum beint af flugvellinum í ljós og svo að leigja videó og á laugardagskv fórum við út að borða á Tivoli og í bíó:) Æi þurftum svo á smá okkar tíma að halda:) Sváfum líka til hálf 4 á sunnudeginum hahahah, það segir ýmislegt um okkur!!!!
Annað búið að ske: *Ýr og Aðalbjörg frá Ak komu og gistu, þvílíku lætin;) DJÓK *Fór á Hamskipti, nemakeppni hárgreiðslumanna en tók ekki þátt sjálf, studdi bara Þóru gellu
Hrópum húrra húrra húrra og veiii fyrir því;) Ég er loksins búin í öllum prófunum mínum JJEEJJJJJJJ : ) Er svo afskaplega kát og glöð að ég er að springa en er að spá í að halda uppá það með því að leggja mig;) Fór í heil 3 próf í morgun og sagði einn kennarinn að þetta hefði sko verið minn dagur:) Stóð mig víst rosa vel sem er æði.... en jú er búin að ná öllum prófunum hingað til með smá erfiðismunum reyndar 1;) Á nú bara eftir að fá út úr 3 en hef engar áhyggjur nema af helv... stærðfræðinni!! En sjáum hvað gerist:) Svo þarf ég að fara að pakka, ná í Önju, skutla henni í pössuná meðan ég vinn, fara að vinna, klára að pakka, sturta, sofa og vakna svo kl tæplega 4 og fara til LONDON:) Ó mæ good hvað ég er hryllilega glöð núna!!!! Svo má nú heldur ekki gleyma hvað kallinn minn er búinn að vera ótrúlega duglegur við að halda kúlinu og vera góður við mig á meðan ég var snappandi af stressi;) Elska þig ástin mín og já auðvitað þig mest Anja mömmumús:) Já hún Anja verður bara hjá honum Gústa pabba sínum á meðan að mammsan er úti að eyða arfinum;) NNÆÆÆSSSSS En jæja sólin skín svo bleeee
Vinir og ókunnugir.... Vildi bara láta ykkur vita, þar sem ég er að fara yfir um af prófstressi, er ekkert víst að ég verði meðal vor næstu viku rúma;/ Sver, fór að ofanda í gær og læti!! Stalst í asmalyf dóttur minnar og fékk svo svefntöflu hjá kæró...... ég er ekki alveg heilbrigð hahahah:/ Nei vá, hef haft nákvæmlega ENGAR áhyggjur út af þessu þangað til nú!!!!!! Fékk svo líka mitt fyrsta mígreniskast um daginn, hætti bara að sjá og festist í hálsi er ég var að skúra stofuna!!! DJÖ EKKI GOTT Og svo vaknaði ég upp með þvílíka verki í fokk hálsinum í gær morgun.... þvílíka stressið á manni hahahahhahaha Vá þetta gæti orðið alveg ágætis læknisskýrsla;)
Allavega, bíst ekki við að blogga næstu viku svo..... see ya
Komin helgi... næsí næs.. Reyndar búin að vera í fríi síðan á miðvikudag en það var nú ekki gamanmanns frí, kistulagning og svo jarðaför í dag. Já svona gengur lífið víst fyrir sig:/ En annars er bara allt ágætt að frétta, heilsan ágæt og svona hjá fjölskyldunni:) Við skötuhjúin förum ekki til sólarlanda í ár eins og manni samt dauðlangar til en í staðinn ætlum við að reyna að fjárfesta í íbúð með haustinu!!! Verð nú að segja að með því væri maður að eyða peningunum í mun uppbyggilegri hluti;) Ætla svo bara að reyna að spara mikið mikið mikið fyrir ferð á næsta ári:) JEJJ *hóst* *hóst* gangi mér vel;) Ætla samt að reyna að ferðast eitthvað smá í sumar, langar td alveg gríðarlega á Skaftafell og svo er möguleiki á að maður fari norður í ágúst og passi afa og litla bró, ma und pa jú að fara til Danaveldis og þeim tveim er ekki treystandi eftir;) Annars er mér boðið í ekki meir né minna en 3 partý annað kveld... hugsa nú samt að ég fari ekkert, fimleikar í fyrramálið með skvísuna, þyrfti að skúra stofuna og svo er það Húsdýragarðurinn með skvísunni og Tinnu og börnum.
Það verður sko stuð, 2 ofurvirkir krakkar;)
En já dúllur er að bíða eftir að myndarlegi maðurinn minn komi heim, vantar svo nudd á axlir, mjóhrygg og axlir...... hum vona að það verðir mér ekki dýrkeypt að biðja um það;) KN'US OG KOSSAR
Komin suður heiðar:/ Þetta var hið ljúfasta líf, að dvelja hjá mömmu sinni!!! Hún reyndar kvartaði yfir því að þurfa alltaf að vakna með Önju (vaknaði að meðaltali kl 7 alla morgna) á meðan ég flatmagaði í rúminu;) Hahahaha það kalla ég frí hjá mér!! En ekkert smá gaman, spilaði, fór út með Ýr og Dóru, fór í sund, á skíði, kíkti á litla sæta frænda og bara hafði það rosa kósý kósý Get nú samt ekki sagt að það sé Dóru að þakka að ég fór á skíði;) Hahahah nennti enginn að fara fyrr en á mánud þegar Ýr gellan mín loksins vildi koma með.... og það gékk ekkert smá vel!!! Tók Önju með mér og hún bara í þvílíkum framförum:) En já kíkti aðeins út með skvísunum og ekkert smá fyndið að sjá ölið taka yfir fóllkið svona í endann á kveldinu;) Miklu skemmtilegra að fara edrú og vita að maður líti svona þokkalega út;) En já komum sem sagt suður á mánudagskv.... 2 tíma seinkun á flugi og svo tok flugið klt sem venjulega tekur 40 mín og fengum við eina móðursjúka sem grét nær allann tímann og vældi og öskraði;/ Arrgg var að verða geðveik.... meina, segjum að flugvélin hrapi og hvað þá, annað hvort drepst maður eða ey og lítið hægt að gera við því!!!!! en jæja dúllur, seeeeee yyaaaaaa